Grænagata 10 302

600 Akureyri
3
2
5
155 m²
59.900.000 kr.
Til baka Deila
  • Tegund Fjölbýli/ Fjölbýlishús með sérinngangi
  • Stærð 155 fm
  • Herbergi 5
  • Stofur 2
  • Svefnherbergi 3
  • Baðherbergi 2
  • Inngangur Sér
  • Byggingaár 1947
  • Brunabótamat 68.660.000
  • Fasteignamat 57.700.000

FS fasteignir – 571-9992

Grænagata 10 302, 600 Akureyri
Skemmtileg 4ra herbergja 155,1m2 íbúð ásamt skúr á lóð einnig er íbúð í kjallara með sérinngangi í fjölbýlishúsi á góðum stað á Eyrinni.

Eignin skiptist:
Hæð:
Forstofa, eldhús, stofa, tvö svefnherbergi og baðherbergi.
Kjallari: Íbúð með einu svefnherbergi, stofu, eldhúsi og baðherbegi. Sameiginlegt þvottahús, bakinngangur dsem einnig notast sem inngangur í kjallaraíbúð og sér geymsla.
Hæð:
- Forstofa er með flísum á gólfi, hurð úr forstofu í kjallara.
- Eldhús er bjart með stórum glugga og eldri innréttingu, góðum borðkrók, tengi fyrir uppþvottavél.
- Stofa parket á gólfi, gluggar í austur og suður.
- Svefnherbergi, parket á gólfi, fataskápur og gluggi í suður.
- Svefnherbergi, dúkur á gólfi, fataskápur og gluggi í norður.
- Baðherbergi hefur verið endurnýjað með epoxy á gólfi og flísum á veggjum, ljós innrétting, sturtuklefi.
Kjallari:
- Geymsla, tvær geymslur í kjallara fylgja eigninni.
- Þvottahús er sameiginlegt í kjallaranum.
- Bakinngangur er sameiginlegur, hægt að nýta sem inngang í ibúð.
Kjallaraíbúð: (íbúðin þarfnast endurnýjunar)
- Eldhús eldri innrétting og eldavél, dúkur á gólfi, gluggi í suður.
- Stofa er rúmgóð, parket á gólfi og stór gluggi í suður.
- Herbergi er með dúk á gólfi og glugga í suður með opnanlegu fagi.

Annað
- Eigninni fylgir geymsluskúr norðan við hús, þar er steypt gólf.
- Gróðurhús á lóð sem er upphitað.
- Búið er að taka inn ljósleiðara.
- Sér mælir fyrir hita og rafmagn, nýjar rafmagnstöflur.
- Vel staðsett eign, stutt í leik- og grunnskóla og helstu þjónustu.

Nánari upplýsingar í síma 571-9992 eða [email protected]

Skoðunarskylda:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. FS fasteignir benda væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna fyrir kauptilboðsgerð og leita til þar til bærra sérfræðinga um nánari skoðun ef þurfa þykir.
 
Forsendur söluyfirlits:
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015 um sölu fasteigna og skipa. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.
 
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
1. Stimpilgjald sýslumanns af kaupsamningi, fyrstu kaup (0,4%), almenn kaup (0,8%), lögaðilar (1,6%) af heildarfasteignamati eignar.
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, mögulegu veðleyfi o.fl. - kr. 3.800 af hverju skjali.
3. Lántökugjald lánastofnunar er skv. verðskrá viðkomandi lánastofnunar. Nánari upplýsingar á t.d. heimasíðu lánastofnana.
4. Umsýslugjald til fasteignasölu skv. kauptilboði.

FS fasteignir ehf. - Glerárgata 36, 3. hæð - 571-9992 - www.fsfasteignir.is
Friðrik Sigþórsson, löggiltur fasteignasali, s: 694-4220, [email protected]
Svala Jónsdóttir, löggiltur fasteignasali, s: 663-5260, [email protected]
Sigurpáll Gunnarsson, nemi til löggildingar fasteignasala, s: 618-6126, [email protected]

Ertu í söluhugleiðingum? Smelltu hér til að fá verðmat og ráðgjöf.
Fylgstu með nýjustu eignunum til sölu hjá okkur á facebook og instagram.

Grænagata 10 302, 600 Akureyri

Senda fyrirspurn um eignina