Grundargerði 4

600 Akureyri
4
2
5
127 m²
82.900.000 kr.
Til baka Deila
  • Tegund Fjölbýli
  • Stærð 127 fm
  • Herbergi 5
  • Stofur 1
  • Svefnherbergi 4
  • Baðherbergi 2
  • Inngangur Sér
  • Byggingaár 1973
  • Brunabótamat 67.550.000
  • Fasteignamat 75.800.000
Opið hús: 09. apríl 2026 kl. 16:30 til 17:00.

Opið hús: Grundargerði 4, 600 Akureyri, Íbúð merkt: 02 01 01. Eignin verður sýnd fimmtudaginn 9. apríl 2026 milli kl. 16:30 og kl. 17:00.

Mjög falleg og mikið endurnýjuð fimm herbergja íbúð í raðhúsi á tveimur hæðum á vinsælum stað á Brekkunni.  Íbúðin er samtals 127,7 m2.  
****   Virkilega falleg íbúð sem vert er að skoða  ****

Nánari lýsing:
Neðri hæð:
Forstofa flísar á gólfi og fatahengi. 
Snyrting er við forstofu, flísar á gólfi, lítil innrétting og upphengt salerni. Gólfsíður gluggi.
Þvottahús/geymsla er innaf forstofu, flísar á gólfi, stór innrétting pláss fyrir tvær þvottavélar og þurrkara.  Opnanlegur gluggi og útidyrahurð.
Stofa/borðstofa er rúmgóð, harðparket á gólfi, hurð út á timburverönd og lóð til suðurs. 
Eldhúsið þar er hvít innrétting, dökkar borðplötur, harðparket á gólfi, flísar á milli efri og neðri skápa. Tengi fyrir uppþvottavél.
Lítil geymsla undir stiga.
Teppi á stiga milli hæða sem nýlega er endunýjað.
Geymsluskúr á lóð sem er mjög rúmgóður.

Efri hæð:
Hol með harðparketi á gólfi. 
Baðherbergið er með flísum á gólfi og hluta veggjar, upphengt salerni, spónlögð innrétting, sturta, handklæðaofn og opnanlegur gluggi.  
Svefnherbergin eru fjögur öll með harðparketi á gólfi, tvö þeirra með fataskápum og útgengi út á svalir úr einu þeirra.


Annað:
- Gólfhiti.
- Fellistigi uppá háaloft er úr svefnherbergi búið að útbúa sem góða geymslu.
- Baðherbergi nýlega endurnýað.
- Þak raðhússins var endurnýjað árið 2014.
- Vinsæl staðsetning.
- Eignin er í einkasölu á FS fasteignir ehf
 

Grundargerði 4, 600 Akureyri

Senda fyrirspurn um eignina