Steinnes Hörgársveit.
Sumarhús á 2.885,0 fm eignarlóð á skjólgóðum stað við Fossá í Hörgársveit. Húsið er 59,2 fm auk 36 fm gáms sem er búið að klæða og bæta við hurðum og gluggum.
Um það bil 15 mín. akstur er frá Akureyri og örstutt er í sundlaugina á Þelamörk. Falleg gönguleið er upp með ánni þar sem eru margir litlir fossar og fallegt umhverfi.
Húsið er byggt 1987 en hefur verið mikið endurnýjað s.s. eins og gólfefni, innréttingar og klæðning utan á húsi. Stór og góð verönd er umhverfis húsið þar sem er góð aðstaða til að grilla og njóta útiveru. Geymsluskúr er bak við húsið.
Húseigninni fylgir heimarafstöð sem getur séð um rafmagn fyrir húsið og stendur rafstöðin við ána stíflan er nokkuð ofar í ánni, Stöðin er biluð og verður kaupandi að sjáum að láta gera við hana ef hann vill í dag er verið að nota rafmagn frá Rarik.
Lýsing eignar:
Eldhús með mjög góðri innréttingu, rými fyrir uppþvottavél og góðu vinnuplássi .
Baðherbergi er inn af forstofu. Þar er sturtuklefi, nýleg innrétting með rými fyrir þvottavél og gluggi
Eitt svefnherbergi er í húsinu og er það ágætlega rúmgott með fataskáp.
Stofa og borðstofa eru í opnu rými. Þar er nýleg kamína og gluggar til tveggja átta.
Eignin er í einkasölu hjá FS fasteignum ehf.
Annað:
- Eignin getur verið laus við kaupsamning.
- Innbú fylgir með.
- Ljósleiðari kominn í hús.
- Frábær staðsetning.