Snyrtileg og björt 3ja herbergja íbúð á fjórðu hæð í góðu fjölbýlishúsi samtals 76,7 m
2. Ásamt sér geymslu á fystu hæð.
Íbúðin skiptist í forstofu/gang, eldhús, þvottahús/geymsla, tvö svefnherbergi, baðherbergi og stofu.
Nánari lýsing:Forstofa/gangur: Á gólfum er parket í forstofu innfeldur opinn fataskápur.
Eldhús: Hvít sprautulökkuð innrétting, nýlega eldhústæki, á gólfi eru ljósgráar flísaplötur.
Þvottahús/geymsla: Innan við eldhús er þvottahús/geymsla, á gólfi eru ljósgráar flísaplötur.
Herbergi: Í hjónaherberginu er rúmgóður fataskápur með hvítum hurðum, á gólfum í herbergjum er harðparket.
Baðherbergi: Á gólfi og hluta veggja eru flísar, hvít sprautulökkuð innrétting, sturtuklefi með gleri.
Stofa: Stofan mjög rúmgóð, úr stofuni er hurð út á rúmgóðar svalir sem snúa til suðurs.
Sér geymsla á fyrstu hæð, málað gólf.
Annað:
- Snyrtileg sameign.
- Svalagólf viðgert og málað.
- Stutt í leiksóka, skóla.