Ásatún 20, 600 Akureyri
85.300.000 Kr.
Fjölbýli/ Fjölbýlishús með lyftu
4 herb.
109 m2
85.300.000
Stofur
1
Svefnherbergi
3
Baðherbergi
1
Inngangur
Sameig.
Byggingaár
2014
Brunabótamat
66.700.000
Fasteignamat
57.450.000

Glæsileg og skemmtileg, 4ra herbergja 109,9m2  íbúð á efstu hæð, inngangur er úr lyftu sem opnast inn í sér forstofu sem eru yfirbyggðar svalir, með gólfhita.  Frábært útsýni með gluggum til allra átta.
Vel staðsett fjölbýlishús í göngufæri við framhald- og grunnskóla, leikskóla, matvöruverslun, gólfvöll og frábærar gönguleiðir.

Gólfefni ljósar flísar af sömu gerð eru á allri íbúðinni.
Innréttingar og innihurðir eru sprautulakkaðar í ljósum lit og spónlögð eik í fataskápum og innihurðum

Íbúðin skiptist í þrjú rúmgóð svefnherbergi, geymslu/herbergi, baðherbergi, stofu, borðstofu og eldhús auk yfirbyggðra svala með frábæru útýni til suðurs og vesturs. 
Inngangur/svalarými: Mjög rúmgott ca 22m2 , ljósar flísar, hvítur skápur. upphitað rými  ( auðvelt að stúka af fyrir geymslu)
Forstofa:  Ljósar flísr á gólfi,  fataskápur úr spónlagðri eik.
Svefnherbergin eru þrjú, mjög rúmgóð, fataskápar úr spónlagðri eik., ljósar flísar á gólfi.
Baðherbergi:  Innrétting er er sprautulökkuð ljós með ljósri borðplötu, einnig er innrétting þar sem rými er fyrir þvottavél og þurrkara.  Sturta og baðkar. Ljósar flísar á gólfi og á veggjum.  Opnanlegur gluggi er þar.
Stofa og borðstofa er í opnu rými, sem er bjart og skemmtilegt rými með fallegu útsýni. 
Eldhús er í enda stofu/borðstofu, þar er innrétting Spratulökkuð ljós, keramik helluborð, ofn, örbylgjuofn og vifta.  Stæði fyrir ísskáp og frystiskáp.
Úr borðstofu er gengið út á yfirbyggðar svalir sem eru 12m2 með frábæru útsýni til suðurs og vesturs.
Geymsla í íbúð er með flísum á gólfi. ( þar væri hægt að setja tengi fyrir þvottavél)

Annað:

- Sex íbúðir í stigagangi
- Lyfta opnast beint í forstofu i íbúð.  
- Gólfhiti
- Granít sólbekkir.
- Tvennar yfirbyggðar svalir með frábæru útsýni.  Aðarar svalirnar eru inngangur sem er lokaður og upphitaður er hinar eru 12m  einnig með svalalokun.
- Sameiginleg geymsla á jarðhæð.
- Eignin er í einkaasölu á FS fasteignir ehf.

 

Senda fyrirspurn um eignina

Skilaboð hafa verið send.

Sjá söluyfirlit

Skilaboð hafa verið send.