Mjög falleg og snyrtileg fjögurra herbergja raðhúsaíbúð 149,9 m² þar af vinnuaðstaða á efri hæð 31,5 m². Á skemmtilegum stað á Brekkunni.
Steypt verönd með timbur skjólveggjum til suðurs.
Forstofa: Flísar á gólfi fataskápur.
Eldhús: Sprautulakkaðar innréttingar með ljósu límtré á borðplötum, á gólfi er ljóst parket.
Stofa/borðstofa: Mjög rúmgott með góðri lofthæð, stórir gluggar, hurð út á steyptan pall .
Herbergi: Fataskápur og ljóst parket á gólfi.
Herbergi: Fataskápur og ljóst parket á gólfi.
Herbergi: Stór fataskápur, ljóst parket á gólfi.
Baðherbergi: Flísar á hluta af veggjum og á gólfi, baðkar með sturtutækjum, Ljós innrétting, stór gluggi á baðherbergi.
Þvottahús: Innaf forstofu með flísum á gólfi, ljósri innréttingu, opnanlegur gluggi.
Vinnuherbergi: Rúmgott vinnuherbergi með góðum glugga á gólfi er harðparket.
Geymsluloft: innaf vinnuherbergi er gengið inná geymsluloft.
Annað:
- Ljósleiðari tengdur inn í hús.
- Hiti í stéttum fyrir framan hús.
- Stutt í leik og grunnskóla.
- Einnig er stutt framhaldskólana VMA og MA
- Stutt á íþróttasvæði KA.
- Mjög vinsæl staðsetning.
- Fasteignamat árið 2025 verður kr. 82.050.000,-
- Eignin er í einkasölu á FS fasteignir ehf.