Mjög falleg fjögurra herbergja efri hæð í fjórbýlishúsi með sérinngangi í Giljahverfi. Íbúðin er samtals 98,8 m² að stærð.
Eignin skiptist í forstofu, geymslu, þrjú svefnherbergi, eldhús, stofu og baðherbergi.
Forstofa er mjög rúmgóð opnað hefur verið inní geymslu, mjög góðir skápar.
Eldhúsið er með sprautulakkaðri innréttingu með flísum á milli skápa og harðparketi á gólfi.
Stofan er rúmgóð og björt með harðparketi á gólfi. Útgangur er á vestur svalir með góðu útsýni.
Svefnherbergin eru þrjú og þar er harðparket á gólfum og fataskápar.
Baðherbergið er rúmgott og flísalagt, sprautulökkuð innrétting, sturta með sturtugleri, innrétting fyrir þvottavél og þurrkara. Gluggi er þar.
Annað:- Sér geymsluloft yfir hluta af íbúð.
- Baðherbergi endunýjað árið 2018
- Lóð og lýsing utandyra endunýjað árið 2021
- Sameiginlegt þurrkherbergi og geymsla.
- Skemmtileg staðsetning, stutt í leik- og grunnskóla.
- Eignin er í einkasölu á FS fasteignir ehf.