Mjög falleg þriggja herbergja íbúð á annarri. hæð í fjölbýli með lyftu. Eignin er samtals 78,7 m
2. en þar af er geymsla 6,9 m
2 einnig fylgir stæði í bílageymslu.
Glæsilegt útsýni er úr íbúðinni og svalir snúa til vesturs.
Eignin skiptist í anddyri, eldhús, stofu, tvö svefnherbergi og baðherbergi með þvottaaðstöðu. Sér geymsla er í sameign.
Forstofa er með harðparkeit á gólfi og fataskáp.
Eldhús er með harðparketi á gólfi, dökk innrétting með ljósri borðplötu og hvítum flísum milli efri og neðri skápa. Innbyggð uppþvottavél og innbyggður ísskápur fylgir og bakaraofn er í vinnuhæð.
Stofa er í opnu rými með eldhúsi,þar er harðparket á gólfi og útgengt út á svalir til vesturs með fallegu útsýni.
Svefnherbergin eru tvö, bæði með harðparketi á gólfum og fataskápum.
Baðherbergi er með flísar á gólfi og veggjum nema innréttingavegg. Góð innrétting með speglaskáp, innréttingu er gert ráð fyrir þvottavél og þurrkara, upphengt salerni og sturtu með vængjahurðum.
Annað: -Gólfhiti í allri íbúðinni
-Rennihurð út á verönd
-Hljóðdempandi plötur í loftum utan baðherbergis.
-Ljósleiðari
-Mynddyrasími
-Gæludýrahald leyft samkvæmt húsreglum